Gos hafið á Reykjanesi: „Mikil hætta á að fólk verði fyrir gaseitrun“ Oddur Ævar Gunnarsson, Vésteinn Örn Pétursson, Sólrún Dögg Jósefsdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 10. júlí 2023 16:48 Ljósmyndari Vísis, Vilhelm Gunnarsson, náði myndum af gosinu fyrr í dag. Vísir/Vilhelm Eldgos er hafið við fjallið Litla-Hrút á Reykjanesi, skammt frá Meradölum þar sem hraun kom upp á síðasta ári. Mikinn reyk og gas leggur nú upp af Reykjanesi og er talið að sprungan sé um 1.500 metrar að lengd. Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar mun fylgjast vel með þróun mála og má sjá allt það nýjasta í vaktinni. Hættustig almannavarna hefur verið virkjað vegna eldgossins. Fólk er beðið um að fara ekki nærri gosupptökum og fara varlega á svæðinu í kring sökum gasmengunar. Eldsumbrotin koma í kjölfar sex daga jarðskjálftahrinu sem hófst 4. júlí síðastliðinn og er staðsetning hraunsins í samræmi við fyrri spár jarðvísindamanna. Virðist vera öflugra Litlar upplýsingar liggja fyrir um nýja eldgosið að svo stöddu en Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að það virtist vera heldur öflugra en þau sem sáust á svipuðum slóðum árin 2021 og 2022. Hraun rennur nú til suðurs þar sem talið er ólíklegt að það muni ógna mannvirkjum. Eiga vísindamenn von á því að hraunið nái síðar í Meradali þar sem gaus í um átján daga í fyrra. Fréttin hefur verið uppfærð. Hér að neðan má sjá vakt Vísis vegna eldgossins. Lesendur gætu þurft að endurhlaða síðuna til að sjá vaktina.
Hættustig almannavarna hefur verið virkjað vegna eldgossins. Fólk er beðið um að fara ekki nærri gosupptökum og fara varlega á svæðinu í kring sökum gasmengunar. Eldsumbrotin koma í kjölfar sex daga jarðskjálftahrinu sem hófst 4. júlí síðastliðinn og er staðsetning hraunsins í samræmi við fyrri spár jarðvísindamanna. Virðist vera öflugra Litlar upplýsingar liggja fyrir um nýja eldgosið að svo stöddu en Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að það virtist vera heldur öflugra en þau sem sáust á svipuðum slóðum árin 2021 og 2022. Hraun rennur nú til suðurs þar sem talið er ólíklegt að það muni ógna mannvirkjum. Eiga vísindamenn von á því að hraunið nái síðar í Meradali þar sem gaus í um átján daga í fyrra. Fréttin hefur verið uppfærð. Hér að neðan má sjá vakt Vísis vegna eldgossins. Lesendur gætu þurft að endurhlaða síðuna til að sjá vaktina.
Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Grindavík Almannavarnir Tengdar fréttir Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Eldgos hófst við Litla-Hrút síðdegis mánudaginn 10. júlí eftir tæplega viku langa skjálftahrinu. 10. júlí 2023 15:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Erlent Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Erlent Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Fleiri fréttir Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Sjá meira
Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Eldgos hófst við Litla-Hrút síðdegis mánudaginn 10. júlí eftir tæplega viku langa skjálftahrinu. 10. júlí 2023 15:47